1. gr. Nafn og heimili

Nafn sambandsins er Landssamband stangaveiðifélaga, skammstafað LS.

Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.


2. gr. Markmið

Markmið sambandsins eru:

1. Að sameina alla félagsbundna stangaveiðimenn á Íslandi í einum samtökum.

2. Að efla samstarf og gagnkvæman skilning milli íslenskra stangaveiðifélaga.

3. Að standa vörð um sameiginleg hagsmunamál stangaveiðifélaga.

4. Að stuðla að sjálfbærri eflingu fiskistofna í ám, vötnum og við strendur landsins.

5. Að vinna að umhverfisvernd og koma í veg fyrir hvers konar náttúruspjöll við vatn, rányrkju og mengun.

6. Að auka skilning stjórnvalda og almennings á málefnum stangaveiðimanna.

7. Markmiðum sínum hyggst sambandið ná m.a. með því:

– Að vera málsvari stangaveiðifélaga í landinu í sameiginlegum hagsmunamálum þeirra.

– Að vera vettvangur umræðna og skoðanaskipta milli stangaveiðimanna á Íslandi og félaga þeirra.

– Að tryggja aðkomu sambandsins að öllum mikilvægum ákvörðunum, reglugerðum og löggjöf sem varða fiskistofna í ám, vötnum og við strendur landsins.

– Að vinna að endurbótum á lögum og reglum um veiðar í ám, vötnum og við strendur landsins með hagsmuni veiðimanna að leiðarljósi.

– Að stuðla að góðri samvinnu við yfirvöld veiðimála og hlutaðeigandi stofnanir.

– Að efla samstarf stangaveiðifélaga við veiðiréttareigendur og aðra veiðiréttarhafa að sameiginlegum hagsmunamálum.


3. gr. Aðildarfélög

Sambandið er samtök stangaveiðifélaga á Íslandi. Íslensk stangaveiðifélög, sem rekin eru á félagslegum grunni, geta sótt um aðild að sambandinu. Aðild nýrra félaga er háð einhuga samþykki stjórnar með fyrirvara um samþykkt aðalfundar. Sé stjórnin ekki sammála, þarf meirihluta atkvæða á aðalfundi til að samþykkja aðild.

Hvert aðildarfélag heldur fullu sjálfstæði sínu og er frjálst að segja sig úr sambandinu.

Ef aðildarfélag brýtur gegn lögum sambandsins eða starfar ekki samkvæmt markmiðum þess skal málið tekið upp á vettvangi stjórnar.


4. gr. Fjárhagsleg ábyrgð aðildarfélaga

Aðildarfélög bera ekki ábyrgð á skuldbindingum sambandsins með öðru en árgjöldum sínum.

Ekkert félag á tilkall til hluta af eignum sambandsins þó að það segi sig úr sambandinu eða sambandinu verði slitið.


5. gr. Árgjöld

Árgjald er ákveðið á aðalfundi. Gjalddagi þess er 1. júní ár hvert.

Hafi félag ekki greitt árgjald í tvö ár getur stjórnin, eftir eðlilegar innheimtuaðgerðir, vikið félaginu úr sambandinu.


6. gr. Aðalfundur og stjórn

Aðalfundur hefur æðsta úrskurðarvald í öllum málum sambandsins.

Aðalfundur kýs stjórn sem stýrir sambandinu milli funda og sér um daglegan rekstur.

Allir félagsmenn aðildarfélaga hafa rétt til setu á aðalfundi með málfrelsi og tillögurétt. Einungis tilnefndir fulltrúar fara með atkvæðisrétt hvers félags.


7. gr. Skipan stjórnar

Í stjórn sitja sjö, formaður og sex almennir stjórnarmenn, varaformaður, gjaldkeri, ritari og með- stjórnendur og einn til vara. Stjórnarmenn eru kjörnir á aðalfundi til tveggja ára í senn. Formann skal kjósa sérstaklega en aðrir stjórnarmenn skipta með sér verkum.

Allir þeir félagsmenn aðildarfélaga LS sem eru 18 ára og eldri og hafa greitt félagsgjöld sín hjá viðkomandi félagi eru kjörgengir til stjórnarkjörs.

Menn sem gegna launuðum störfum fyrir aðildarfélögin eru ekki kjörgengir til stjórnar.


8. gr. Verkefni stjórnar

Stjórnin fer með mál sambandsins milli aðalfunda og kemur fram fyrir hönd þess.

Stjórnin skal senda eintak af skoðuðum ársreikningi og afrit af fundargerð aðalfundar til aðildarfélaga að loknum aðalfundi.

Stjórn skipar fulltrúa sambandsins í opinberar nefndir, ráð eða aðra hópa þar sem óskað er eftir aðkomu ís- lenskra stangaveiðimanna. Stjórn er heimilt að kveðja sér til aðstoðar einstaka félaga til afmarkaðra verk- efna, nefndarstarfa og þess háttar.

Stjórn skal hafa frumkvæði að því að tryggja aðkomu sambandsins að opinberri stefnumótun og setningu laga, reglna eða reglugerða sem með einhverjum hætti snerta stangveiðimenn, áhugamál þeirra, hagsmuni eða stefnu sambandsins.


Ef fulltrúi félags forfallast skal stjórn viðkomandi félags tilnefna annan í hans stað.


9 gr. Atkvæðisréttur á aðalfundi

Aðildarfélög sambandsins hafa jafnan atkvæðisrétt á aðalfundi.


10. gr. Boðun aðalfundar

Aðalfundur skal haldinn fyrir lok mars ár hvert.Til fundarins skal boðað í tölvupósti til stjórnar aðildarfélaga með minnst mánaðar fyrirvara.

Aðalfundur er lögmætur ef hann er löglega boðaður.


11. gr. Verkefni aðalfundar

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

1. Kosning fundarstjóra og ritara.

2. Fundargerð síðasta aðalfundar.

3. Skýrsla formanns um starfsemi stjórnar.

4. Skoðaðir reikningar lagðir fram.

5. Lagabreytingar.

6. Ákvörðun árgjalds.

7. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga

8. Inntaka nýrra aðildarfélaga

9. Önnur mál

Tveir skoðunarmenn reikninga skulu kosnir til eins árs ásamt einum til vara.

Við persónukjör hlýtur sá kosningu sem fær flest atkvæði. Falli atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða.

Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála á aðalfundi, annarra en lagabreytinga en þar þarf meirihluta hluta atkvæða til að lagabreytingar nái fram að ganga. Hafi stjórn ekki verið einhuga um inntöku nýs aðildarfélags þarf meirihluta hluta atkvæða til að samþykkja hana.


12. gr. Stjórnarfundir

Formaður kveður stjórn saman til fundar eftir þörfum. Skylt er að halda stjórnarfund ef tveir eða fleiri stjórnarmenn óska þess.

Á stjórnarfundum ræður einfaldur meirihluti ákvörðunum.


13. gr. Aukafundir

Stjórnin kveður til aukafunda í sambandinu þegar henni þykir þörf, eða tvö skuldlaus aðildarfélög óska þess.

Aukafundi skal boða með minnst 10 daga fyrirvara og tilgreina fundarefni í fundarboði.

Á aukafundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða miðað við vægi atkvæða hvers aðildarfélags á aðalfundi.

Aukafundur getur vísað málum til formannaráðs til umfjöllunar.


14. gr. Lagabreytingar

Lagabreytingar verða aðeins gerðar á aðalfundi, enda séu tillögur þar um sendar með fundarboði.

Tillögur til lagabreytinga skulu sendar stjórn sambandsins fyrir 1. september. Aðeins verða greidd atkvæði um breytingartillögur sem fylgja fundarboði og breytingartillögur við þær. Lagabreyting nær því aðeins fram að ganga að hún hljóti meirihluta hluta greiddra atkvæða.


15. gr. Úrsögn úr sambandinu

Óski aðildarfélag að segja sig úr sambandinu skal tilkynna það stjórn við fyrsta tækifæri. Aðildarfélög, sem segja sig úr sambandinu, missa sjálfkrafa alla fulltrúa sína í stjórn og öðrum trúnaðarstörfum. Stjórn skal, svo fljótt sem auðið er, boða til aukafundar til að kjósa fulltrúa í þeirra stað ef þörf er á.

Aðildarfélag, sem tilkynnt hefur úrsögn sína, getur ekki sótt neinar eignir eða endurgreiðslur á árgjöldum til sambandsins.


16. gr. Endadægur

Komi fram vilji meirihluta aðildarfélaga eða stjórnar um að sambandið verði lagt niður skal málið tekið fyrir á tveimur aðalfundum til endanlegrar afgreiðslu.

Tillaga um slit sambandsins skal send með fundarboði.

Slitin ná fram að ganga verði þau samþykkt með minnst meirihluta greiddra atkvæða á tveimur aðalfundum í röð.

Síðasti aðalfundur ráðstafar eignum sambandsins.


Samþykkt á aðalfundi Landssambands Stangaveiðifélaga þann 13. október 2025.